• Frá vinstri: Forseti Íslands, Eliza Reid forsetafrú, Bárður Hafsteinsson, Helgi Björnsson, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Hulda Karen Daníelsdóttir, Jón Kalman Stefánsson, Einar Bollason, Þórólfur Guðnason, Alma Möller, Víðir Reynisson, Sigrún Þuríður Geirsdóttir, Anna Dóra Sæþórsdóttir og Jón Sigurðsson.
Fréttir | 17. júní 2020

Hin íslenska fálkaorða

Forseti Íslands sæmdi í dag, 17. júní, fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir eru:

Alma Möller landlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina

Anna Dóra Sæþórsdóttir prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á vettvangi ferðamálafræði og útivistar

Bárður Hafsteinsson skipaverkfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til hönnunar fiskiskipa og íslensks sjávarútvegs

Einar Bollason fyrrverandi formaður KKÍ og stofnandi Íshesta, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íþrótta og störf á vettvangi ferðaþjónustu

Ellý Katrín Guðmundsdóttir fyrrverandi borgarritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og framlag til opinskárrar umræðu um Alzheimer sjúkdóminn

Helgi Björnsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar

Hildur Guðnadóttir tónskáld, Berlín, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar

Hulda Karen Daníelsdóttir kennari og formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði starfsþróunar og kennslu íslensku sem annars máls og framlag til eflingar tengsla við afkomendur Íslendinga í Vesturheimi

Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta

Jón Sigurðsson fyrrverandi rektor, seðlabankastjóri og ráðherra, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu

Sigrún Þuríður Geirsdóttir þroskaþjálfi, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir afrek á sviði sjósunds

Sigurborg Ingunn Einarsdóttir fyrrverandi hjúkrunarforstjóri og ljósmóðir, Eskifirði, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina

Fréttatilkynning

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar