Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Kanada, frú Anne-Tamara Lorre sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Í samtali þeirra var rætt um síaukin tengsl Íslands og Kanada á mörgum sviðum. Minnst var á hina sterku taug sem finna má milli Íslands og þeirra Kanadabúa sem eru af íslensku bergi brotnir, en ekki síður um sóknarfæri milli ríkjanna tveggja í viðskiptum, ekki síst vegna aukinna flugsamgangna. Mynd.
Fréttir
|
27. sep. 2016
Sendiherra Kanada
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt