Forseti tekur á móti Hallgrími Jónssyni níræðum. Hallgrímur fæddist á Bessastöðum 22. júní 1927. Foreldrar hans, Elín Vigfúsdóttir og Jón H. Þorbergsson, bjuggu um þær mundir þar en fluttu ári síðar á aðra stórjörð, Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu. Hallgrímur varð þjóðkunnur lögreglumaður og þekktur kappi í frjálsum íþróttum. Hann reit endurminningar sínar, Reynsluslóðir.
Fréttir
|
22. júní 2017
Hallgrímur Jónsson
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt