Fréttir | 19. jan. 2021

Alþingishátíðarstell

Forseti tekur við Alþingishátíðarstelli. Hjónin Áslaug Þorgeirsdóttir og Ragnar Önundarson færðu embættinu stellið að gjöf og verður það varðveitt á Bessastöðum. Hátíðarstellið var framleitt í tilefni Alþingishátíðarinnar 1930 þegar þess var minnst að þúsund ár töldust frá stofnun Alþingis á Þingvöllum. Vorið 2018 gáfu börn og aðrir vandamenn Gísla Konráðssonar og Sólveigar Axelsdóttur stell sömu gerðar og er það nýtt á Staðastað, skrifstofu embættisins við Sóleyjargötu í Reykjavík. Áslaug og Ragnar hafa áður komið færandi hendi til Bessastaða. Á fullveldisdaginn 1. desember 2010 afhentu afkomendur Ragnars Ásgeirssonar (bróður Ásgeirs Ásgeirssonar forseta) embætti forseta og Þjóðminjasafninu skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar, skálds og kennara við Bessastaðaskóla. Ragnar keypti púltið á sínum tíma af Einari Benediktssyni skáldi en síðar var það í eigu Ragnars Önundarsonar, dóttursonar hans. Skrifpúltið stendur nú á efri hæð Bessastaðastofu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar