• Fríða Ísberg er handhafi Íslensku bjartsýnisverðlaunanna 2021.
  • Fríða Ísberg tók við Íslensku bjartsýnisverðlaununum úr hendi forseta Íslands og Rannveigar Ristar, forstjóra Rio Tinto á Íslandi.
Fréttir | 02. jan. 2022

Bjartsýnisverðlaunin

Forseti afhendir Íslensku bjartsýnisverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Í ár voru þau veitt Fríðu Ísberg, ljóðskáldi og rithöfundi. Upptöku af athöfninni má sjá á facebook síðu forseta.

Fríða hefur unnið við ritlist lengi þrátt fyrir ungan aldur og hlotið ýmsar viðurkenningar. Hún hefur skrifað útvarpsleikrit, ljóðabálk fyrir norska ljóðahátíð, verið leiðbeinandi, ritstjóri og gagnrýnandi svo fátt eitt sé nefnt. Verk Fríðu hafa verið þýdd, eða eru væntanleg í þýðingu, á fjórtán tungumálum. Fyrsta skáldsaga hennar, Merking, kom út nú í haust og hefur hlotið verðskuldaða athygli.

Íslensku bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið veitt árlega frá árinu 1981 og hefur forseti Íslands verið verndari verðlaunanna frá upphafi. ISAL álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar