• Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
  • Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
  • Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
  • Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
  • Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
  • Forseti ásamt Birni Pálssyni, fyrrverandi ljósmyndara sjómannadagsráðs. Ljósmyndir/Hreinn Magnússon
Fréttir | 12. júní 2022

Sjómannadagurinn

Forseti sækir hátíðardagskrá sjómannadagsins í Reykjavík. Dagurinn hófst með athöfn við Minningaröldur í Fossvogskirkjugarði. Á minnisvarðann eru letruð nöfn drukknaðra, týndra sjómanna, og annarra sæfara. Þá sótti forseti hátíðarmessu sjómannadagsins í Dómkirkjunni í Reykjavík. Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir prédikaði og séra Sveinn Valgeirsson sóknarprestur Dómkirkjunnar þjónaði en lesarar voru frá Landhelgisgæslunni. Meðan á guðsþjónustu stóð var lagður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins.

Í Sjómannadagsblaði ársins er m.a. viðtal við forseta um rannsóknir hans á sögu landhelgismálsins og má lesa það hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar