• Forsetahjón, Rúna Sif Rafnsdóttir, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Fríða Björk Ingvarsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Karen J. Sturlaugsson, Guðni Guðmundsson, Ari Trausti Guðmundsson, Drífa Hjartardóttir, Guðmundur Gunnarsson, Magnús Jakobsson, Ólöf Margrét Magnúsdóttir, Örlygur Richter, Mats Wibe Lund og Már Kristjánsson.
Fréttir | 17. júní 2022

Orðuveiting

Forseti sæmir 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2022. Þau eru:

1. Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari, riddarakross fyrir framlag til tónlistarflutnings.
2. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, riddarakross fyrir störf á vettvangi vísinda og þekkingarmiðlunar.
3. Drífa Hjartardóttir, bóndi og fyrrverandi alþingismaður, riddarakross fyrir sveitarstjórnarstörf og framlag til menningarmála í heimabyggð.
4. Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor, riddarakross fyrir framlag til menntamála á háskólastigi.
5. Guðmundur Gunnarsson veiðarfærameistari, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf á vettvangi sjávarútvegs og þróun veiðarfæra.
6. Guðni Guðmundsson bóndi, riddarakross fyrir framlag til umhverfisverndar og samfélagsþjónustu.
7. Karen J. Sturlaugsson, tónlistarkennari og hljómsveitarstjórnandi, riddarakross fyrir framlag til tónlistaruppeldis ungmenna.
8. Magnús Jakobsson, fyrrverandi formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, riddarakross fyrir framlag til íþrótta- og æskulýðsstarfs.
9. Mats Wibe Lund ljósmyndari, riddarakross fyrir störf á vettvangi ljósmyndunar og menningar.
10. Már Kristjánsson yfirlæknir, riddarakross fyrir framlag til meðferðar smitsjúkdóma og baráttu við Covid-19.
11. Ólöf Margrét Magnúsdóttir sérkennari, riddarakross fyrir framlag til sérkennslu og málefna barna með fötlun.
12. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingur, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðisþjónustu og baráttu við Covid-19.
13. Rúna Sif Rafnsdóttir sjúkraliði, riddarakross fyrir framlag í þágu mannúðar.
14. Örlygur Richter, fyrrverandi skólastjóri, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og skólamála.

Fréttatilkynning.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar