Fréttir | 17. okt. 2022

Forseti Finnlands og forsetafrú til Íslands

Forseti Finnlands, Sauli Niinistö, og Jenni Haukio forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í vikunni ásamt fylgdarliði. Heimsóknin stendur yfir dagana 19.–20. október en gestirnir halda af landi brott föstudaginn 21. október.

Heimsóknin hefst með formlegri móttökuathöfn á Bessastöðum miðvikudaginn 19. október kl. 09:00. Að henni lokinni munu forsetar Íslands og Finnlands eiga fund og ræða svo við fulltrúa fjölmiðla. Þessu næst halda gestirnir í Alþingi og funda þar með Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis, og varaforsetum. Að því loknu býður Katrín Jakobsdóttir gestunum og fleirum til hádegisverðar í Ráðherrabústaðnum.

Eftir hádegi verður opinn málfundur, Nordic Cooperation in Testing Times, í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, þar sem forseti Finnlands og forseti Íslands fjalla um norræna samvinnu á átakatímum. Að loknum umræðum forsetanna fara fram pallborðsumræður þar sem ráðherrar Norðurlandamála í ríkisstjórnum Íslands og Finnlands og fræðimenn við Háskóla Íslands ræða málefnið. Viðburðurinn er opinn almenningi á meðan húsrúm leyfir.

Sama gildir um opið bókmenntasamtal með forsetafrúm Íslands og Finnlands í Norræna húsinu kl. 10:20. Fundurinn ber yfirskriftina Shifting Perspectives – Literature and National Identities. Þar ræða þær Eliza Reid og Jenni Haukio, sem báðar hafa lagt fyrir sig ritstörf, við Eirík Örn Norðdahl rithöfund og Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur skáld um íslenskan og finnskan bókmenntaarf og hvernig hann mótar sjálfsmynd þjóðanna. Á báðum þessum fundum verður töluð enska.

Um kvöldið er gestunum boðið til hátíðarkvöldverðar á Bessastöðum ásamt fulltrúum íslenskra stjórnvalda, fulltrúum úr viðskipta- og menningarlífi og aðilum sem tengjast samstarfi landanna.

Á fimmtudaginn fara íslensku forsetahjónin með finnsku sendinefndinni á Vesturland. Farið verður í ísgöngin á Langjökli og forsetahjónum Finnlands gefið færi á að sjá með eigin augum hvernig jökullinn hefur hopað á undanförnum árum. Þá munu þau njóta þess að skoða hið stórbrotna landslag á Þingvöllum, Kaldadal og í Húsafelli.

Sjá fréttatilkynningu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar