• Ljósmynd/Eyþór Árnason
  • Ljósmynd/Eyþór Árnason
  • Ljósmynd/Eyþór Árnason
  • Ljósmynd/Eyþór Árnason
  • Ljósmynd/Eyþór Árnason
  • Ljósmynd/Eyþór Árnason
Fréttir | 19. okt. 2022

Samvinna á átakatímum

Forseti tekur þátt í málfundi ásamt Sauli Niinistö, forseta Finnlands, í Veröld húsi Vigdísar. Rætt var um norræna samvinnu á átakatímum, undir fundarstjórn Auðuns Atlasonar, ráðgjafa forsætisráðherra í utanríkismálum. Að loknum umræðum forsetanna fóru fram pallborðsumræður þar sem Thomas Blomqvist og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, ráðherrar Norðurlandamála í ríkisstjórnum Íslands og Finnlands, ræddu málefnið ásamt Jóni Ólafssyni, prófessor við Háskóla Íslands, og Ann-Sofie Nielsen lektor. Umræðum stýrði Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands. Viðburðurinn var opinn almenningi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar