Fréttir | 27. okt. 2022

Rætt um jafnrétti

Eliza Reid forsetafrú tekur þátt í hringborðsumræðum um jafnréttismál á Gyðingasafninu í Bratislava. Forsetahjón eru nú í opinberri heimsókn í Slóvakíu í boði Zuzana Čaputová, forseta landsins. Juraj Rizman, maki forseta, tók á móti forsetafrú á Gyðingasafninu þar sem þau fengu leiðsögn um tímabundna sýningu safnsins þar sem fjallað er um afrekskonur í slóvakískri sögu. Á eftir fylgdu hringborðsumræður þar sem Eliza Reid og Juraj Rizman ræddu við fulltrúa félagasamtaka sem beita sér fyrir jafnréttimálum í Slóvakíu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar