Fréttir | 05. des. 2022

Strassborg

Forseti heimsækir Evrópuráðið í Strassborg í Frakklandi dagana 6.-7. desember. Þar tekur hann þátt í dagskrá og fundum í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu.

Þann 6. desember tekur forseti þátt í viðburði í Evrópuráðinu um stafrænt kynbundið ofbeldi. Viðburðurinn er skipulagður af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópuráðinu, í tengslum við fund aðildarríkja Istanbúlsamningsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Með ráðstefnunni verður í fyrsta sinn leitt saman starf Evrópuráðsins um netglæpi annars vegar og um kynbundið ofbeldi hins vegar. Á viðburðinum verður lögð áhersla á þátt karla og drengja í jafnréttisbaráttu og heldur forseti þar opnunarávarp. Síðdegis 6. desember er forseta boðið sem heiðursgesti í þjóðhátíðarmóttöku fastanefndar Finnlands í Strassborg. Forseti ávarpar samkomuna.

Miðvikudaginn 7. desember á forseti fund með varaframkvæmdastjóra Evrópuráðsins, Björn Berge. Þá fundar forseti með aðstoðardómsmálaráðherra Úkraínu um ábyrgðarskyldu vegna glæpa sem framdir hafa verið í innrásinni í Úkraínu. Á hádegi á miðvikudag verður forseti sérstakur gestur á fundi ráðherranefndar Evrópuráðsins. Þar mun forseti ávarpa fundinn og ræða leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í maí 2023 þar sem Ísland verður gestgjafi. Einnig heimsækir forseti Mannréttindadómstól Evrópu og fundar með forseta dómstólsins, Síofra O'Leary.

Eliza Reid forsetafrú heimsækir einnig Evrópuráðið og tekur m.a. þátt í viðburði um íslenskar bókmenntir ásamt Einari Kárasyni rithöfundi og opnar jólamarkað starfsfólks Evrópuráðsins til styrktar stríðshrjáðu fólki í Úkraínu. Þá sækja forsetahjónin sérstaka sýningu á dönsk-íslensku kvikmyndinni Volaða land fyrir starfsfólk Evrópuráðsins og fastanefndir aðildarríkjanna í Strassborg.

Fréttatilkynning.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar