Forseti afhendir Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum. Í flokki barna- og ungmennabóka fékk Arndís Þórarinsdóttir verðlaunin fyrir Kollhnís. Ragnar Stefánsson hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis fyrir bókina Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta. Í flokki skáldverka hlaut Pedro Gunnlaugur Garcia fyrir skáldsöguna Lungu. Þá afhenti forseti íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann og hlaut þau Skúli Sigurðsson fyrir bókina Stóri bróðir. Lista yfir alla tilnefnda höfunda má sjá á vef Félags íslenskra bókaútgefenda, sem kosta verðlaunin.
Athöfninni var sjónvarpað í beinni útsendinu á RÚV og má sjá upptökuna hér. Ávarp forseta við afhendingu verðlaunanna má lesa hér.