• Jón Ferrier ásamt forseta með afmælisritið.
  • Afmælisrit The Illustrated London Weekly til heiðurs Winston Churchill áttræðum árið 1954.
  • Félag Íslendinga í London hugðist færa Ásgeiri Ásgeirssyni forseta Íslands ritið um Winston Churchill að gjöf í tilefni stórafmæla þeirra beggja árið 1954.
  • Ritið er áritað af þáverandi stjórnarmeðlimum Félags Íslendinga í London, þeim Birni Björnssyni og Jóhanni Sigurðssyni. Á ljósmyndini er Björn Björnsson ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni forseta.
  • Afmælisritið hefur nú fengið sinn sess í bókasafni Bessastaðastofu.
  • Afmælisritið hefur nú fengið sinn sess í bókasafni Bessastaðastofu.
  • Jón Ferrier og Ragna Þórhallsdóttir ásamt forseta með afmælisritið.
Fréttir | 10. feb. 2023

69 ára bókargjöf

Forseti tekur á móti bókargjöf sem ætluð var Ásgseiri Ásgeirssyni, fyrrverandi forseta, í tilefni sextugsafmælis hans árið 1954. Það sama ár varð Winston Churchill áttræður og gaf breska vikuritið The Illustrated London News út sérstakt afmælisrit honum til heiðurs. Félag Íslendinga í London festi kaup á ritinu og hugðist færa forseta Íslands og verndara félagins það að gjöf, en sendingin komst aldrei til skila.

Ein af stofnendum Íslendingafélagsins í London var Guðbjörg Elínborg Þórðardóttir, síðar Elinborg Ferrier, og varðveittist ritið í fórum hennar, fjölskyldu hennar og afkomenda. Elinborg Ferrier lést árið 1983 en barnabarn hennar, Jón Ferrier, tók að sér að koma afmælisritinu í hendur forseta á Bessastöðum í dag, 69 árum eftir að það stóð upphaflega til. Ritið er áritað af þáverandi stjórnarmeðlimum Félags Íslendinga í London, þeim Birni Björnssyni og Jóhanni Sigurðssyni.

Forseti tók á móti gjöfinni ásamt Rögnu Þórhallsdóttur, sonardóttur Ásgeirs Ásgeirssonar og fyrrverandi starfsmanni forsetaembættisins. Ritið hefur nú fengið sinn sess í bókasafni Bessastaðastofu.

Pistill forseta um bókargjöfina.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar