Fréttir | 12. maí 2023

Framtíðaröryggi Evrópu

Forseti flytur opnunarávarp alþjóðlegrar ráðstefnu um framtíð öryggis- og varnarmála Evrópu. Ráðstefnan, sem fram fór í Grósku í Reykjavík, er haldin árlega í tengslum við ACONA námsleið Höfða friðarseturs um samningatækni á sviði afvopnunarmála. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Negotiating the Future of European Security. Í ávarpi sínu minnti forseti meðal annars á mikilvægi þess að spornað verði við misnotkun sögunnar, enda auðvelt að finna dæmi um þjóðarleiðtoga sem ali á tortryggni og jafnvel hatri í garð annarra í þágu eigin hagsmuna heima fyrir. Auk forseta tók Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Pia Hanson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar, til máls við opnunina. Þá tók fjöldi erlendra og íslenskra sérfræðinga þátt í panelumræðum. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér og upptöku 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar