Fréttir | 14. maí 2023

Vegvísar til framtíðar

Forseti flytur lokaávarp á alþjóðlegu málþingi í tilefni af 80 ára afmæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Yfirskrift málþingsins var Vegvísar til framtíðar og ræddu þar bæði íslenskir og erlendir gestir um málefni sem Ólafi Ragnari eru hugleikin, ekki síst friðarfrumkvæði þjóðarleiðtoga, orkubyltinguna, áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðir og þjóðmál í framtíðinni. Ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík. Í kveðju sinni minnti forseti meðal annars á ýmsa þætti sem hefðu markað feril Ólafs Ragnars á opinberum vettvangi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar