Fréttir | 17. feb. 2025

Landssamband ungmennafélaga

Forseti á fund með fulltrúum Landssambands ungmennafélaga, sem er regnhlífarsamtök fyrir félög ungs fólks á Íslandi, með um 40 aðildarfélög og hátt í 60 þúsund félagsmenn á landsvísu. Markmiðið er að hvetja til virkrar samfélagsþáttöku ungmenna, efla samstarf félaganna og stuðla að samtali og þekkingarsköpun. Forseti ræddi við stjórn og starfsfólk landssambandsins um verkefni þeirra og framtíðarsýn og um leiðir til valdeflingar ungs fólks á Íslandi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar