Fréttir | 03. mars 2025

Slóvakía og Ísland

Forseti á fund með Eriku Halasova, og ræðismanni Íslands í Slóvakíu og Runólfi Oddssyni, ræðismanni Slóvakíu á Íslandi. Auk þess að vera ræðismaður er Erika Halasova einnig prófessor við Jessenius-læknaskólann í Martin í Slóvakíu, en þar hefur fjöldi Íslendinga stundað læknanám undanfarin ár og nú þegar um 100 íslenskir læknar útskrifast. Rætt var um farsæl samskipti Íslands og Slóvakíu og gagnkvæman ávinning af ástundun íslenskra læknanema í Martin.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar