Forseti sæmir skáta forsetamerki í Bessastaðastofu. Forseti Íslands er verndari Skátahreyfingarinnar á Íslandi og afhendir forsetamerki ár hvert. Athöfnin fer jafnan fram í Bessastaðakirkju en vegna viðgerða á kirkjunni voru merkin nú afhent í Bessastaðastofu.
Forsetamerkið er veitt rekkaskátum, 16-18 ára, sem hafa valið að vinna að merkinu samhliða starfi sínu. Í forsetamerkinu sameinast gildi skátahreyfingunnar um persónulegar framfarir einstaklingsins og þess að gera sitt besta samfélaginu til heilla. Vegferðin að forsetamerkinu er 2-3 ára verkefni sem hvetur skátanna til persónulegs vaxtar í gegnum 20 fjölbreytt verkefni.
Í athöfninni fluttu tvö úr hópi forsetamerkishafa, Alma Sól Pétursdóttir og Viktor Nói Berg stutta hugvekju, þar sem þau stikluðu á stóru gegnum vegferð sína að forsetamerkinu. Við sama tilefni sæmdi Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátahöfðingi forseta gullmerki Bandalags íslenskra skáta með þökkum fyrir verndarahlutverkið.