Forseti Íslands afhendir steinsteypuverðlaun Steinsteypufélags Íslands á steinsteypudeginum 2017. Verðlaunin í ár hlaut Högna Sigurðardóttir arkitekt. Nemendaverðlaun félagsins voru veitt Birgi Péturssyni. Bæði eru þau nýlátin, Högna í hárri elli en Birgir lést í snjóflóði á Esju undir lok síðasta mánaðar. Hann var 25 ára og hafði nýlokið MS-gráðu frá Háskóla Íslands. Fyrir verðlaunaafhendinguna minntust viðstaddir þeirra Högnu og Péturs með stuttri þagnarstund. Þá fengu þeir Egill Helgason sjónvarpsmaður og Pétur H. Ármannsson sérstaka viðurkenningu fyrir sjónvarpsþætti þeirra, Steinsteypuöldina.
Fréttir
|
17. feb. 2017
Steinsteypa
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt