Forseti sækir fyrirlestur dr. Joanne Watson talmeinafræðings á ráðstefnu réttindavaktar Velferðarráðuneytisins, „Að skilja vilja og vilja skilja“. Á ráðstefnunni var sjónum beint að leiðum til að skilja óskir og þarfir fatlaðs fólks sem á erfitt með að tjá sig á hefðbundinn hátt. Watson kennir við Deakin-háskóla í Ástralíu og er með þekktasta fræðafólki á þessu sviði. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Háskóla Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp. Að henni lokinni átti forseti fund með Watson og fylgdarliði. Í dag er Fyrirmyndardagurinn sem Vinnumálastofnun stendur að. Þá geta fyrirtæki og stofnanir boðið fólki með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn í einn dag eða hluta úr degi. Embætti forseta Íslands tók þátt í því merka framtaki.
Fréttir
|
24. nóv. 2017
Að skilja vilja
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt