Forseti Íslands er gerður að heiðursdoktor við Queen Mary, University of London. Forseti stundaði þar doktorsnám og lauk prófum árið 2004. Doktorsritgerð hans fjallaði um fiskveiðideilur á Norður-Atlantshafi 1948-1964 og má lesa hana hér. Við útskrift nemenda, þar sem forseti var sæmdur heiðursdoktorsnafnbótinni, flutti hann stutt ávarp og minnti þar á mikilvægi menntunar og sérfræðiþekkingar en ætíð yrði þó að hafa í huga takmörk þekkingar og nauðsyn þess að hlusta á ólík sjónarmið og nálganir á viðfangsefni.
Fréttir
|
19. des. 2017
Heiðursdoktor
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt