Á fyrsta degi opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Stokkhólms flutti frú Eliza Reid forsetafrú ávarp á fundi um gildi bókmenntaþýðinga með sérstakri áherslu á íslenskar bókmenntir. Fundurinn hafði yfirskriftina "Books build bridges" (Bækur byggja brýr) og var hann haldinn í Borgarbókasafninu í Stokkhólmi; á eftir erindi frú Elizu voru pallborðsumræður. Fyrr um daginn skoðaði forsetafrúin Bernadotte bókasafnið í Konungshöllinni og krúnudjúsnin sem þar eru einnig varðveitt.
Fréttir
|
17. jan. 2018
Forsetafrú heimsækir bókasöfn í Stokkhólmi
Aðrar fréttir
Fréttir
|
24. apr. 2024
Hvert stefnir Ísland?
Forseti flytur ávarp á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar.
Lesa frétt