Forseti veitir nýsveinum og meisturum þeirra viðurkenningar á árlegri nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Einnig var heiðursiðnaðnaðarmaður félagsins tilnefndur. Í ár varð Rannveig Rist, vélvirki og forstjóri Rio Tinto á Íslandi, fyrir valinu. Forseti flutti einnig ávarp og ræddi þar meðal annars um mikilvægi iðnnáms í samfélaginu.