Forseti á fund með Sun Shuxian, aðstoðarforstjóra Hafmálastofnunar Kína, og sendinefnd frá stofnuninni. Rætt var um samstarf milli Íslands og Kína um vísindarannsóknir á norðurslóðum og sérstaklega um rannsóknir á norðurljósum sem sinnt verður í nýju vísindasetri um rannsóknir á norðurljósum á Kárhóli í Reykjadal. Fundinn sátu einnig sendiherra Kína á Íslandi, Þorsteinn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Rannís og fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, og Egill Þór Níelsson, ritari Rannsóknarmiðstöðvar Kína og Norðurlandanna í Shanghai. Myndir.
Fréttir
|
09. okt. 2016
Vísindasamstarf Kína og Íslands
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt