Fréttir | 09. nóv. 2016

Heillaóskir

Forseti hefur sent Donald Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar sigurs hans í forsetakosningunum. Forseti áréttaði í kveðju sinni rótgróna samvinnu og vináttu þjóðanna tveggja og langa sameiginlega sögu sem teygði anga sína allt aftur til þess er sæfarendur frá Íslandi og Grænlandi tóku land í Norður-Ameríku fyrir meira en þúsund árum. Öldum síðar hefðu þúsundir Íslendinga flutt búferlum vestur um haf og leitað nýrra tækifæra sem nýbúar í frjálsum samfélögum. Enda þótt Bandaríkin væru eitt stærsta lýðræðisríki veraldar en Ísland eitt hið minnsta deildu þjóðirnar mörgum mikilvægum gildum; við styðjum einhuga frelsi til hugsana og tjáningar, jafnrétti kynjanna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð litarhafti eða trú. Fréttatilkynning.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar