Forseti tekur á móti sendiherra El Salvadors, frú Anita Cristina Escher Echeverría, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um möguleika á auknum samskiptum ríkjanna, þar á meðal á sviði jarðskjálftarannsókna og björgunar með leitarhundum. Á mynd með forseta og sendiherra er Isabella Alejandra Diaz sem hefur búið á Íslandi um árabil og er frá El Salvador. Þjóðbúninginn sneið hún sjálf og saumaði.
Fréttir
|
07. feb. 2017
Sendiherra El Salvadors
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt