Forseti sendi í dag samúðarkveðju sína og íslensku þjóðarinnar til Elísabetar II Bretadrottningar vegna hryðjuverksins sem framið var í Manchester í gærkvöldi og beindist sérstaklega að unglingum. Í kveðjunni segir forseti meðal annars að ekkert réttlæti hryðjuverk, enginn sem styðji ódæði af þessu tagi verðskuldi skjól í lýðræðissamfélagi. Hugur okkar Íslendinga sé hjá þeim særðu og þeim sem nú syrgja látna ástvini. Hann meti mikils viðbrögð þeirra sem komu slösuðum til bjargar á voðastundu og þann ríka samhug sem skapaðist í borginni. Fréttatilkynning.
Fréttir
|
23. maí 2017
Samúðarkveðja til Bretadrottningar
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt