Forseti á fund með Agus Hermanto, varaforseta indónesíska þingsins, og átta öðrum þingmönnum frá Indónesíu. Fundinn sátu einnig sendiherrar landanna og ræðismaður Indónesíu á Íslandi. Á fundinum var rætt um ýmis sameiginleg hagsmunamál landanna, ekki síst nýtingu jarðvarma, en íslensk fyrirtæki hafa komið að verkefnum á því sviði í þessu fjórða fjölmennasta ríki jarðar. Einnig var rætt um ógnir öfgahyggju í íslamstrú, hryðjuverk og varnir við þeim í Indónesíu þar sem stjórnvöld leggja áherslu á friðsamlega sambúð allra, hvaða trúarbrögð sem þeir kunna að aðhyllast. Þá var fjallað um áskoranir í ferðamannageiranum auk þess sem rætt var um sjávarútveg og gagnkvæman áhuga á auknum samskiptum þjóðanna.
Fréttir
|
10. ágú. 2017
Varaforseti löggjafarþings Indónesíu
Aðrar fréttir
Fréttir
|
20. apr. 2024
Grímsfjall og Jökulheimar
Forseti heldur að Grímsvötnum í Vatnajökli.
Lesa frétt
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt