Forseti á fund með hr. Manjusri Jayantha Pallpane, nýjum sendiherra Srí Lanka, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um möguleika á samstarfi ríkjanna á sviði fiskveiða og fiskveiðistjórnunar, og þá uppbyggingu sem íbúar Srí Lanka hafa ráðist í bæði eftir borgarastyrjöld og eftir flóðbylgjuna miklu sem skall á eyríkinu árið 2004.
Fréttir
|
23. ágú. 2017
Nýr sendiherra Srí Lanka
Aðrar fréttir
Fréttir
|
24. apr. 2024
Hvert stefnir Ísland?
Forseti flytur ávarp á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar.
Lesa frétt