Forseti flytur opnunarávarp á ráðstefnunni Lestur er lykill að ævintýrum. Menntamálastofnun og Menntavísindasvið Háskóla Íslands standa að ráðstefnunni en til hennar er meðal annars boðað vegna þess að nú eru tvö ár liðin frá því að öll sveitarfélög landsins skrifuðu undir Þjóðarsáttmála um læsi og verkefni um það var ýtt úr vör. Í ávarpi sínu fór forseti yfir þróun lestrarkunnáttu í aldanna rás og mikilvægi þess að öll börn fái lestrarkennslu við hæfi.
Fréttir
|
18. nóv. 2017
Lestur er lykill að ævintýrum
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt