Fréttir | 02. feb. 2018

Opið hús á Bessastöðum á Safnanótt

Í dag, föstudaginn 2. febrúar, verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi sem liður í Vetrarhátíð og Safnanótt 2018. Gestum býðst að skoða Bessastaðastofu milli klukkan 17:00 og 21:00. Auk hinna merku steinhúsa frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist og fornleifar sem veita innsýn í búsetu á Bessastöðum frá landnámstíð. Kirkjan verður einnig opin fyrir gesti á sama tíma. Þá mun fyrsti forsetabíll lýðveldissögunnar, Packardbifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði Bessastaða en hún er ríflega sjötug, árgerð 1942. Starfsmenn embættis forseta, fulltrúar kirkjunnar, nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og nemar í fornleifafræði við Háskóla Íslands verða gestum til aðstoðar.

Fréttatilkynning um málið.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar