Fréttir | 19. maí 2018

Jamie Carragher og Neistinn

Forseti tekur á móti Jamie Carragher, fyrrverandi leikmanni Liverpool, fulltrúum Liverpoolklúbbsins á Íslandi og Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna. Carragher er hér á landi ásamt vinum og ættingjum. Í móttökunni afhenti stjórn Liverpoolklúbbsins forystuliði Neistans myndarlegan styrk sem klúbbsmenn söfnuðu. Í stuttu ávarpi þakkaði forseti þá góðgerðasemi og benti á mikilvægi íþrótta til að auka sjálfstraust fólks og samheldni – sé rétt að málum staðið. Sú samheldni getur meðal annars falist í því að styðja sitt lið en láta kappið ekki bera fegurðina ofurliði.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar