Forseti á fund með sendiherra Tælands, Prasittporn Wetprasit, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samskipti Íslands og Tælands, lýðræðisþróun þar ytra og fyrirhugaðar kosningar í landinu snemma næsta ár. Þá var rætt um hagi fólks hérlendis sem er af tælensku bergi brotið og stöðu mála á alþjóðavettvangi, einkum í Suðaustur-Asíu.
Fréttir
|
22. maí 2018
Sendiherra Tælands
Aðrar fréttir
Fréttir
|
24. apr. 2024
Hvert stefnir Ísland?
Forseti flytur ávarp á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar.
Lesa frétt