Fréttir | 02. júlí 2018

Þýðingasérfræðingur Microsoft

Forseti á fund með Will Lewis, þýðingasérfræðingi frá Microsoft, sem stjórnað hefur vinnu við vélræna þýðingu milli ýmissa tungumála í hugbúnaði fyrirtækisins. Í för með honum voru Heimir Fannar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri og fleiri starfsmenn Microsoft á Íslandi. Rætt var um ýmsar hliðar þýðingastarfs og gildi þess fyrir íslenskt málsamfélag að íslenska sé meðal þeirra tungumála sem horft er til við þróun þýðingakerfa og annars hugbúnaðar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar