Fréttir | 16. ágú. 2018

Hringborð

Forseti tekur á móti fyrrverandi landsforsetum samtakanna Round Table í Evrópu ásamt íslenskum gestgjöfum þeirra. Í þessum samtökum eru karlmenn á aldrinum 20-45 ára með það að markmiði „að sameina unga menn úr mismunandi starfsgreinum til að öðlast betri skilning á þjóðfélaginu og stöðu einstaklingsins innan þess“ og lifa eftir einkunnarorðunum „í vináttu og samvinnu”.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar