Fréttir | 05. sep. 2018

Afmæli Eirar

 

Forsetahjón sækja afmælisfagnað Hjúkrunarheimilisins Eirar í Reykjavík. Í ár er aldarfjórðungur frá því að það var tekið í notkun. Íbúar og gestir nutu tónlistar og ræðuhalda og börn á leikskólanum Brekkuborg í næsta nágrenni við Eir sungu söngva. Síðan var boðið upp á veitingar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar