Fréttir | 06. sep. 2018

Sendiherra Noregs

Forseti tekur á móti sendiherra Noregs, Hilde Svartdal Lunde, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samskipti Íslands og Noregs, mikilvægi norrænnar samvinnu, ekki síst á sviði mennta og menningar, og framtíðarhorfur í alþjóðamálum. Að atburðinum loknum var boðið til móttöku fyrir Noregsvini á Íslandi og aðra sem láta sig samskipti ríkjanna varða.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar