Fréttir | 24. sep. 2018

Orka og markaðir

Forseti flytur opnunarávarp á alþjóðlegu orkumarkaðsráðstefnunni Charge í Reykjavík. Viðburðinn sækja á þriðja hundrað manns úr orkugeiranum. Um helmingur þeirra kemur að utan og kynnist hér meðal annars því sem Ísland hefur upp á að bjóða á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Í máli sínu minntist forseti á það efni og nefndi jafnframt nauðsyn þess að almenningur geti ætíð vænst orku til daglegrar notkunar á viðráðanlegum kjörum.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar