Fréttir | 04. okt. 2018

Alþjóðleg kvikmyndahátíð

Forsetahjón bjóða gestum alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar RIFF, Reykjavík International Film Festival, til móttöku á Bessastöðum. Við það tilefni voru heiðursverðlaun hátíðarinnar afhent. Þau hlaut í ár Helga Stephenson sem hefur lagt RIFF mikið lið frá því að hátíðin var fyrst haldin fyrir 15 árum. Helga er kanadísk en af íslenskum ættum og sóttu hérlendir ættingjar hennar viðburðinn.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar