Fréttir | 14. okt. 2018

Gestir frá Póllandi

Forseti tekur á móti Stanisław Karczewski, forseta öldungadeildar pólska þjóðþingsins, Önnu Zalewska, menntamálaráðherra Póllands, og fleiri gestum frá pólska þinginu. Rætt var um góð samskipti Íslands og Póllands og um gildi þess að Pólverjar á Íslandi haldi í menningu upprunalands síns um leið og þeir taki virkan þátt í og tilheyri samfélaginu á Íslandi. Einnig var vikið að nauðsyn þess að tryggja réttindi verkafólks af erlendum uppruna sem kemur hingað til starfa.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar