Fréttir | 19. okt. 2018

Gestir frá Kyrrahafseyjum

Forseti á fund með fulltrúum frá eyjum í Kyrrahafinu sem nú sækja ráðstefnu Hringborðs norðurslóða í Reykjavík. Fulltrúarnir komu m.a. frá Tonga, Salómonseyjum, Nýja Sjálandi, Kiribati, Cookeyjum, Palá og Fijieyjum. Á fundinum var m.a. rætt um afleiðingar af hækkun sjávarborðs í Kyrrahafi, áhrif vaxandi ferðamannastraums og möguleika á auknu samstarfi Íslands og eyja í Kyrrahafi, svo sem á sviði háskólastarfs.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar