Fréttir | 23. okt. 2018

Sendiherra San Marínós

Forseti tekur á móti sendiherra San Marínós, Federica Bigi, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um stöðu San Marínós á alþjóðavettvangi og ekki síst gagnvart Evrópusambandinu. Þá var rætt um efnahagshorfur í San Marínó og mikilvægi ferðamennsku þar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar