Fréttir | 27. nóv. 2018

Alþjóðasamskipti

Forseti á fund með José Manuel Barroso, fyrrverandi framkvæmdastjóra Evrópusambandsins og núverandi yfirmanni hjá alþjóðabankanum Goldman Sachs. Barroso er staddur hér á landi ásamt fleirum frá bankanum í tengslum við ráðstefnu kvenleiðtoga sem nú stendur yfir í Reykjavík. Á fundinum var rætt um þróun Evrópusamrunans í sögulegu ljósi og framtíðarhorfur í þeim efnum, ekki síst með hliðsjón af rás viðburða í Bretlandi um þessar mundir.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar