Fréttir | 27. nóv. 2018

Sendiherra Indónesíu

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Indónesíu, Todung Mulya Lubis, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samskipti ríkjanna á ýmsum sviðum og möguleika á frekari samvinnu, ekki síst við nýtingu nær óþrjótandi jarðhita í Indónesíu. Þá var rætt um þróun mála á norðurslóðum og áhuga Indónesa á þeim vettvangi.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar