Fréttir | 04. feb. 2019

Gengið til góðs

Forseti gengur með liðsmönnum Specialisterne á Íslandi, samtökum sem hjálpa fólki á einhverfurófi að vera með í samfélaginu, stunda atvinnu og njóta félagsskapar. Í dag stóðu samtökin að útigöngu, framtaki sem rekja má til Skotlands og nefnist þar The Daily Mile. Markmiðið er að hvetja alla til að hreyfa sig og styrkjast þannig á sál og líkama.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar