Fréttir | 05. feb. 2019

Sendiherra Túnis

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Túnis, Ammar Ben Lamine, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um efnahag Túnis og horfur í þeim efnum, ekki síst vöxt ferðaþjónustu í landinu undanfarin ár. Þá lýsti sendiherrann viðhorfum stjórnvalda í Túnis til þróunar mála í Norður-Afríku síðasta áratug. Einnig var minnst á mögulegar leiðir til að auka viðskipti Íslendinga og Túnisa og samvinnu á sviði menningar og mennta.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar