Fréttir | 12. feb. 2019

Sendiherra Tansaníu

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Tansaníu, Willibrod Peter Slaa, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um sjálfstæðissögu Tansaníu og samanburð við reynslu Íslendinga. Þá var rætt um háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi og góða reynslu Tansaníumanna af þeim vettvangi. Einnig bar á góma leiðir til að stuðla að auknu kynjajafnrétti í Tansaníu og möguleika á samstarfi og samvinnu í því þjóðþrifamáli.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar