Fréttir | 14. feb. 2019

Sólveig Anspach verðlaunin

Eliza Reid forsetafrú afhendir Sólveig Anspach verðlaunin á frönsku kvikmyndahátíðinni sem haldin er í Háskólabíói. Verðlaunin eru veitt konum fyrir fyrstu stuttmyndir þeirra á frönsku eða íslensku, tungumálum Sólveigar, og hvetja ungar konur með þeim hætti til dáða í kvikmyndaleikstjórn. Kanadíski kvikmyndaleikstjórinn Mélanie Charbonneau hlaut verðlaunin að þessu sinni.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar