Fréttir | 27. feb. 2019

Sendiherra Malís

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Malís, Oumou Sall Seck, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um hina ríku bókmenntahefð í Malí sem á sér þar djúpar rætur. Einnig var rætt um framtíðarhorfur í landinu, bága stöðu flóttafólks þar, baráttu við ógnaröfl og leiðir til að bæta stöðu malískra kvenna.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar