Fréttir | 04. mars 2019

Brjóstmynd á Bessastöðum

Forseti tekur á móti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Ólafi Ragnari Grímssyni fyrrverandi forseta og fjölskyldu hans og fleiri gestum í tilefni af því að ný brjóstmynd af Ólafi Ragnari var afhjúpuð á Bessastöðum. Myndin verður á efri hæð Bessastaðastofu með brjóstmyndum af öðrum fyrrverandi forsetum lýðveldisins. Við þetta tækifæri flutti forseti ávarp og það gerðu einnig forsætisráðherra, Ólafur Ragnar og Helgi Gíslason myndhöggvari, höfundur verksins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar